Á. Óskarsson & Co. ehf. | Þverholti 8 | 270 Mosfellsbæ | S. 566-6600 | oskarsson@oskarsson.is
Forsíða / Um okkur / Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar

I. GILDISSVIÐ
Skilmálar þessir gilda um viðskipti milli Á. Óskarssonar ehf. og viðskiptamanns.
Með viðskiptamanni er átt við einstakling(a) sem og hvers kyns lögaðila, fyrirtæki eða stofnun sem er kaupandi af vörum og/eða þjónustu af Á. Óskarssyni ehf.

Á. Óskarsson ehf. – kt. 460178-0299, er með aðsetur að Þverholti 8 – 270 Mosfellsbæ.

Skilmálarnir gilda um öll viðskipti, hvort sem um vöruviðskipti eða þjónustuviðskipti er að ræða. Skilmálarnir gilda jafnt fyrir reikningsviðskipti sem og fyrir staðgreiðsluviðskipti. Þegar um neytendakaup er að ræða gilda ákvæði neytendakaupalaga nr. 48/2003 en um kaup annara aðila gilda ákvæði lausafjárkaupalaga nr. 50/2000.

II. ÁBYRGÐIR & GALLAR
Frestur til að bera fyrir sig galla á vörum er 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða en 6 mánuðir þegar um lausafjárkaup er að ræða. Frestur til að bera fyrir sig galla tekur ekki mið af þeim tíma sem vara er í ábyrgð. Ábyrgð á vörum miðast við þann tíma sem framleiðandi ábyrgist sem og lögbundna ábyrgð eigi hún við. Takmarkanir á ábyrgð miðast sömuleiðis við þær takmarkanir sem framleiðandi setur og lög heimila. Ábyrgð nær ekki til vinnu eða aukakostnaðar, t.d. ferðatíma, aksturs- og uppihaldskostnaðar ef viðgerð fer fram utan aðseturs Á. Óskarssonar ehf. og/eða viðurkenndra verkstæða. Þá nær ábyrgð ekki yfir slit vegna eðlilegrar notkunar, skemmda eða bilana sem rekja má til óeðlilegrar notkunar, lélegrar geymslu, lítils viðhalds eða slæmrar umgengni. Ábyrgð fellur úr gildi ef breytingar eða viðgerðir hafa verið gerðar af öðrum en viðurkenndum þjónustuaðilum og án samþykkis Á. Óskarssonar ehf.

III. SKILAFRESTUR & ENDURGREIÐSLUR
Skilafrestur á vöru í söluhæfu ástandi og í upprunanlegum umbúðum er 14 dagar frá móttöku og aðeins gegn framvísun reiknings eða fylgiseðils.  Við vöruskil er kaupverð yfirleitt endurgreitt með sömu greiðsluleið og viðhöfð var við kaupin, þ.e. með endurgreiðslu inn á greiðslukort eða með millifærslu. Endurgreiðsla getur einnig verið í formi inneignarnótu, t.d. í þeim tilfellum þar sem gjafabréf hafa verið notuð við kaup. Í reikningsviðskiptum eru kaupin bakfærð.

Ekki er hægt að skila:

  • Vörum sem teljast til sérpantana (sjá kafla IV)
  • Gjafabréfum
  • Vörum sem ætlaðar eru til mjög persónulegra nota, svo sem nærklæðnað eða álíka
  • Innlendur flutningskostnaður fæst ekki endurgreiddur

Við vöruskil þarf að afhenda vöru í vöruhúsi okkar að Þverholti 8 í Mosfellsbæ.

IV. SÉRPANTANIR
Með sérpöntunum er átt við vörur sem ekki eru til í vöruhúsi Á. Óskarssonar ehf. á Íslandi þegar viðskiptamaður óskar eftir þeim og eru þær því fluttar sérstaklega til landsins eftir að viðskiptamaður hefur samþykkt tilboð eða lagt fram pöntun. Sérpantanir geta eins og aðrar pantanir farið fram skriflega eða munnlega, gegnum síma, tölvupóst eða netverslun. Komi í ljós eftir móttöku pöntunar að vara sé ekki til á lager á Íslandi er viðskiptamaður upplýstur um áætlaðan afhendingartíma og getur þá staðfest kaupin eða fallið frá þeim. Tímafrestur til þess að afturkalla sérpöntun er 2 dagar frá dagssetningu pöntunar.

Ekki er hægt að skila vöru sem hefur verið sérpöntuð fyrir viðskiptamann. Á. Óskarsson ehf. ábyrgist ekki afhendingartíma á vörum sem hafa verið sérpantaðar og miðast uppgefinn afhendingartími ávallt við mat og fyrri reynslu af sérpöntunum til viðeigandi framleiðanda/birgja. Viðskiptamaður getur því ekki rift kaupum á grundvelli of langs afhendingartíma nema aðilar geri með sér samkomulag um riftun kaupa. Þegar um sérpantanir neytenda í gegnum netverslun er að ræða gilda auglýst verð í netverslun þegar pöntun er lögð inn og í framhaldinu staðfest af Á. Óskarssyni ehf. Þegar um sérpantanir lögaðila er að ræða getur endanlegt verð vöru endað hærra heldur en það verð sem gefið var upp þegar pöntun átti sér stað t.d. vegna gengisveikingar. Endanlegt verð vöru er þá miðað við gengi á ISK á þeim tíma sem varan kemur til landsins eða þegar greiðsla hefur borist til erlends framleiðanda/birgja. Lögaðilar eiga þess kost að gengistryggja sig að hluta eða öllu leyti með fyrirframgreiðslu náist um það samkomulag milli viðskiptamanns og Á. Óskarssonar ehf.

V. AFHENDING & EIGNARHALD Á VÖRUM
Almennur afhendingartími á vörum er 4-16 virkir dagar frá því að Á. Óskarsson ehf. staðfestir móttöku og vinnslu pöntunar. Sé um sérpöntun að ræða getur afhendingartími í sumum tilfellum verið lengri og er þá áætlaður. Vörur eru að jafnaði sendar með Íslandspósti hf. frá vöruhúsi Á. Óskarssonar ehf. í Mosfellsbæ og gilda þá skilmálar Íslandspóst um flutning, afhendingu og ábyrgð. Innlendur póstkostnaður bætist við pöntunina og innheimtir Íslandspóstur hf. þann kostnað við afhendingu skv. eigin verðskrá. Ef notast er við aðra innlenda flutningsaðila gilda skilmálar og verð þeirra. Viðskiptamaður getur einnig óskað þess að fá innlendan flutningskostnað uppgefinn fyrirfram og getur þá sömuleiðis greitt fyrir hann fyrirfram. Einnig getur viðskiptamaður óskað þess að sækja vörurnar í vöruhús okkar í Mosfellsbæ og greiðir þá engan innlendan flutningskostnað. Ekki er hægt að sækja vörur í vöruhús fyrr en pöntun hefur verið staðfest og afhendingarheimild gefin út.

Allar vörur eru eign Á. Óskarssonar ehf. þar til þær eru að fullu greiddar sbr. lög um samningsveð nr. 75/1997. Viðskiptamanni er því óheimilt að veðsetja vörurnar eða selja þar til þær eru að fullu greiddar.

VI. AUGLÝSTAR VÖRUR & VERÐLAGNING ÞEIRRA
Öll verð í vefverslun eru sýnd með VSK. Einingaverð í tilboðum og á reikningum geta verið bæði með og án VSK. Í öllum tilfellum er þó endanleg heildarupphæð sýnd skýrt með VSK. Gerður er fyrirvari við möguleg myndabrengsl, ranga vörulýsingu og ranga verðlagningu. Á. Óskarsson ehf. áskilur sér rétt til þess að leiðrétta ranga framsetningu á vörum og þjónustu og innheimta í samræmi við rétta vöru og verð eða að öðrum kosti að falla frá viðskiptunum.

VII. REIKNINGSVIÐSKIPTI & INNHEIMTA
Þegar um reikningsviðskipti er að ræða skuldbindur viðskiptamaður sig til þess að greiða kostnað af innheimtu, greiðslugjald vegna útgáfu bankakröfu/greiðsluseðils sem og annan mögulegan innheimtukostnað í samræmi við gjaldskrá viðskiptabanka og innheimtustofnana. Greiðslukröfur eru að jafnaði gefnar út vikulega og er almennur greiðslufrestur 15 dagar frá útgáfudegi reiknings. Hafi krafa ekki verið greidd á eindaga er send út lögbundin viðvörun og fer hún síðan sjálfkrafa í milliinnheimtu. Fáist krafa ekki greidd í milliinnheimtu fer hún sjálfkrafa í löginnheimtu. Viðskiptamaður gefur upp netfang og símanúmer (samskiptaupplýsingar) í þágu viðskiptanna og samþykkir að samskiptaupplýsingunum verði miðlað til innheimtuaðila, komi til innheimtuaðgerða. Viðskiptamaður samþykkir auk þess að samskiptaupplýsingarnar verði hagnýttar almennt til samskipta við hann vegna innheimtu, þar á meðal með rafrænum innheimtuferlum. Sjálfskuldarábyrgð gildir um viðskiptin ef sá einstaklingur sem kemur að kaupunum framkvæmir þau fyrir hönd fyrirtækis eða félags sem tengist honum gegnum eignarhald, fjölskyldu- eða vinatengls.